Endómetríósa á Íslandi. Nýgengi, staðsetning og aðgerðir.

other OA: green CC0
🔓 Open OA copy View on OpenAlex

Abstract

Inngangur: Endómetríósa (legslímuflakk) er langvinnur og erfiður sjúkdómur meðal kvenna sem getur haft mikil áhrif á lífsgæði þeirra og möguleika til barneigna. Sjúkdómurinn er algeng orsök verkja, óreglulegra blæðinga og ófrjósemi. Markmið rannsóknarinnar var að meta nýgengi og flokka sjúkdóminn eftir alvarleika og staðsetningu fyrir árabilið 2001-2015. Efniviður og aðferðir: Skoðuð voru gögn frá þeim sjúkrastofnunum hér á landi þar sem aðgerðir til greiningar á endómetríósu höfðu getað farið fram, þ.e.a.s. Landspítala, Skt. Jósefsspítala, Sjúkrahúsinu á Akureyri, Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Lækningu, einkarekinni stofnun. Fundnar voru konur með alþjóðlegu ICD-greiningarkóðana N80.0-N80.9 og sjúkraskrár þeirra, aðgerðarlýsingar og vefjagreiningasvör skoðuð. Staðsetningu endómetríósu í grindarholi var skipt í fimm flokka og sjúkdómnum í tvo flokka eftir alvarleika. Konur með adenomyosis (legslímu- og vöðvavilla) voru útilokaðar frá rannsókninni, sem og konur sem greindust fyrir 2001. Niðurstöður: Alls voru nýgreindar konur 1435 talsins á árunum 2001-2015 á aldrinum 15-69 ára, þar af 1346 nýgreindar á frjósemialdri, þ.e.a.s. 15-49 ára. Nýgengi var misjafnt milli ára, frá 5,9-13,3/10 000 en að meðaltali greindust 9,1/10 000 konur á ári á aldrinum 15-69 ára. Fyrir aldurinn 15-49 ára var nýgengi milli ára frá 6,7-16,4/10 000 og meðaltal 11,4/10 000. Meðalaldur við greiningu var 34,6 ár, yngsta konan sem greindist var 17 ára á meðan elsta var 66 ára. Greining var með kviðsjá hjá 80,9% kvennanna og staðfest með vefjarannsókn hjá 65,1%. Algengasta staðsetning endómetríósu var á eggjastokkum og neðarlega í grindarholi. Meirihluti kvennanna greindist með vægari form sjúkdómsins, þ.e.a.s. 68,9%, en 31,1% greindist með alvarlegri vefjaskemmdir. Ályktanir: Að meðaltali eru að greinast 95,7 konur á ári með endómetríósu, þar af þriðjungur með alvarlegri sjúkdóm. Nýgengi var svipað og í fyrri íslenskri rannsókn sem tók til áranna 1981-2000 og í nokkrum erlendum rannsóknum þar sem byggt er á vel afmörkuðu þýði. Dreifing á vefjaskemmdum sýndi hærra hlutfall í grindarholi en í fyrri rannsókn sem tengist sennilega breyttri og bættri greiningartækni. Meðalaldur við greiningu var sá sami og í fyrri rannsókn sem bendir til þess að betri kviðsjártækni leiði ekki til greiningar fyrr á frjósemiskeiði.

My notes (saved in your browser only)

Condition tags

adenomyosis

Citation neighborhood (no data yet)

We don't have any in-corpus citations linked to this paper yet. The paper's references may be in our DB but unresolved to ``paper_id`` (resolution happens at ingest when the cited DOI matches a row we already have). Run the cross-source citation reconcile pass to retry.

Source provenance

openalex
last seen: 2026-05-11T07:29:28.128719+00:00
License: CC0 · commercial use OK