Resting tone of pelvic floor muscles in women with endometriosis: Pilot study

other OA: green CC0
🔓 Open OA copy View on OpenAlex

Abstract

Inngangur: Legslímuflakk er ágengur sjúkdómur sem lýsir sér þannig að legslímufrumur finnast utan legs. Hann einkennist af verkjum í grindarholi sem geta þróast í langvinna verki. Greiningartími er langur og eru konur oft með einkenni í langan tíma án viðeigandi meðferðar. Það getur leitt af sér yfirspennu í grindarbotnsvöðvum og erfiðleikum að ná fram slökun. Þar geta sjúkraþjálfarar veitt meðferð og nýtt sérþekkingu sína á stoðkerfi líkamans. Markmið: Að bera saman hvíldarspennu grindarbotnsvöðva kvenna með legslímuflakk og kvenna sem ekki hafa sjúkdóminn. Aðferð: Einblind þversniðsrannsókn á 22-52 ára konum. Alls voru 15 konur í rannsóknarhóp og 15 konur í viðmiðunarhóp. Hvíldarspenna grindarbotnsvöðva var mæld með þrýstingsmæli (Gymna Myo 200TM) í leggöngum. Þátttakendur svöruðu spurningalista um stoðkerfisverki, líkamlega virkni og fleira. Niðurstöður: Í þrýstingsmælingum var ekki marktækur munur milli hópa: meðaltal grunnhvíldarspennu (p=0,18), hvíldarspennu eftir endurtekna hámarkssamdrætti (p=0,06) eða hækkun á hvíldarspennu úr fyrstu hvíld eftir fyrsta hámarkssamdrátt og þar til eftir endurtekna hámarkssamdrætti (p=0,41). Konur í viðmiðunarhópi virðast líkamlega virkari en þær sem eru í rannsóknarhópi ef horft er til atvinnu og hreyfingu í frítíma. Stór hluti kvenna í rannsóknarhópi segjast almennt finna fyrir stoðkerfisverkjum en fáar hafa nýtt sér sjúkraþjálfun sem meðferð við einkennum sjúkdómsins. Ályktun: Niðurstöður þessarar forrannsóknar byggja á litlu tölfræðilegu afli en gefa vísbendingar fyrir frekari rannsóknir á þessu sviði. Gagnreynd þekking er sjúkraþjálfurum nauðsynleg til að vinna á rót vandans hvað varðar einkenni og afleiðingar legslímuflakks.

My notes (saved in your browser only)

Condition tags

endometriosis

Citation neighborhood (no data yet)

We don't have any in-corpus citations linked to this paper yet. The paper's references may be in our DB but unresolved to ``paper_id`` (resolution happens at ingest when the cited DOI matches a row we already have). Run the cross-source citation reconcile pass to retry.

Source provenance

openalex
last seen: 2026-05-11T07:36:52.491845+00:00
License: CC0 · commercial use OK