Is there a lack of knowledge about endometriosis? Mental and social impacts on women. A systematic review

dissertation OA: closed CC0
View on OpenAlex

Abstract

Bakgrunnur: Endómetríósa er langvinnur sjúkdómur þar sem vefur sem líkist legslímunni vex utan legs hjá konu, meðal annars á eggjaleiðurum, í grindaholi eða á eggjastokkum.Sjúkdómurinn er þekktur fyrir að valda miklum og langvarandi verkjum, sérstaklega þegar kona hefur tíðir. Orsakir endómetríósu eru ekki að fullu kunnar en talið er að erfðir, ónæmiskerfi og hormón hafi þar áhrif. Erfitt getur verið að greina sjúkdóminn og oft líða mörg ár frá fyrstu einkennum til greiningar sem hefur áhrif á meðferðarúrræði þeirra sem greinast. Endómetríósa hefur ekki einungis áhrif á líkamlega líðan kvenna heldur einnig mikil áhrif á andlega og félagslega líðan þeirra og algengt er að konur með endómetríósu greinist með kvíða eða þunglyndi. Tilgangur: Að taka saman rannsóknir á þekkingu og fræðslu á endómetríósu hjá almenningi og innan heilbrigðiskerfisins, einnig hversu mikil áhrif endómetríósa hefur á andlega og félagslega líðan kvenna samkvæmt rannsóknum. Aðferð: Gerð var kerfisbundin fræðileg leit á leitarvefjunum Scopus og PubMed með því skilyrði að heimildirnar hefðu birst á árunum 2016-2026. Notuð voru inntöku- og útilokunarskilyrði og einnig var ABC- gæðamatið notað til þess að meta gæði greinanna. Niðurstöður: Það voru notaðar samtals 9 rannsóknir við skrif á niðurstöðukaflanum. Niðurstöður benda til þess að mikill skortur sé á þekkingu og fræðslu um endómetríósu hjá konum og fólki almennt. Niðurstöður benda einnig til þess að bein tenging sé á milli líkamlegrar líðanar og andlegrar- og félagslegrar líðanar kvenna með endómetríósu og að sjúkdómurinn hafi víðtæk áhrif á líf kvenna. Ályktanir: Það má álykta að það sé verulegur skortur á fræðslu um endómetríósu og getur það haft neikvæð áhrif á konur sem greinast með sjúkdóminn. Mikilvægt er fyrir allar konur að þekkja einkenni sjúkdómsins því skortur á þekkingu getur leitt til þess að konur leita sér ekki til hjálpar þegar þær þurfa og tefur það þá greiningu og meðferð. Mikilvægt er að fræðsla verði aukin og að það aðgengi að greiningu og meðferð fyrir konur með endómetríósu verði bætt. Lykilorð: æxlunarfæri kvenna, endómetríósa, tíðahringur, lífsgæði, andleg líðan, félagsleg heilsa, fræðsla, skortur á fræðslu, vanþekking, skortur á vitund og verkir.

My notes (saved in your browser only)

Citation neighborhood (no data yet)

We don't have any in-corpus citations linked to this paper yet. This is a recent paper (2026) — citers typically take a year or two to land, and the OpenAlex reference graph may still be filling in.

Source provenance

openalex
last seen: 2026-07-10T06:00:46.527841+00:00
License: CC0 · commercial use OK