Tónlist í almennri kennslu : áhrif tónlistar á líðan og námsárangur

dissertation OA: closed CC0
View on OpenAlex

Abstract

Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Ed. prófs í kennarafræðum á grunnskólakjörsviði við Háskólann á Akureyri. Markmiðið með verkefninu er að kanna þau áhrif sem tónlist hefur á líðan og námsárangur barna og unglinga. Ritgerðin hefst á umfjöllun um tónlistaruppeldi og það hlutverk sem tónlist gegnir í þroskaferli ungra barna ásamt því að farið verður yfir fjölgreindarkenningu Howard Gardner með sérstakri áherslu á tónlistargreind. Þar á eftir fylgir fræðileg umfjöllun um þau víðtæku áhrif sem tónlist getur haft á heilsu, tilfinningar og félagsþroska einstaklingsins. Litið verður á líffræði- og félagsleg áhrif sem og samspil tónlistar og hreyfingar, meðal annars út frá hugmyndafræði þýska tónskáldsins Carl Orff. Fjallað verður um gildi tónlistar í námi, svo sem hvaða áhrif hún getur haft á heilaþroska og minnisgeymd, og notkun og áhrif bakgrunnstónlistar í skólastofunni. Kannað verður hvernig samþættingu tónlistar og annarra greina hefur verið háttað, annars vegar hvernig samþætta má tónlist og tungumálakennslu til að styðja við orðaforðanám og hins vegar kosti þess að nota tónlist í stærðfræðikennslu. \nÍ síðari hluta ritgerðarinnar verður fjallað ítarlega um rannsóknir, bæði innlendar og erlendar, sem snúa að áhrifum tónlistar á líðan og námsárangur barna, aðferðafræði þeirra skoðuð og niðurstöður kynntar. Hér er annars vegar um að ræða rannsóknir á notkun tónlistar í kennslustofunni og hins vegar áhrif reglubundinnar tónlistariðkunar á námsárangur og líðan. Samantekt á rannsóknunum og niðurstöðum þeirra var gerð til að varpa ljósi á það hvort tónlist ætti erindi inn í almennt skólastarf. Í þessari ritgerð er því leitast við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningu: Getur tónlist í almennri kennslu haft áhrif á líðan og námsárangur barna og unglinga?

My notes (saved in your browser only)

Citation neighborhood (no data yet)

We don't have any in-corpus citations linked to this paper yet. The paper's references may be in our DB but unresolved to ``paper_id`` (resolution happens at ingest when the cited DOI matches a row we already have). Run the cross-source citation reconcile pass to retry.

Source provenance

openalex
last seen: 2026-05-11T07:51:59.466421+00:00
License: CC0 · commercial use OK