Endometriosis: Impact on women's lives

other OA: closed CC0
View on OpenAlex

Abstract

Bakgrunnur: Endómetríósa er langvinnur sjúkdómur meðal kvenna sem getur haft mikil áhrif á líf þeirra, þar á meðal lífsgæði, barneignir, menntun og starfsferil ásamt mörgu öðru. Algeng einkenni endómetríósu eru grindarverkir, óreglulegur tíðahringur og sársaukafullir tíðaverkir, ásamt fylgikvillum eins og ófrjósemi, þreytu, kvíða og þunglyndi. Mikil vitundarvakning hefur átt sér stað í samfélaginu síðastliðin ár um sjúkdóminn endómetríósu, hvaða áhrif sjúkdómurinn hefur á líf kvenna og takmarkanir í meðhöndlun þar sem konur lifa með sársaukafulla verki árum saman. Endómetríósa er vangreindur sjúkdómur vegna erfiðleika við greiningu þar sem eina leiðin til að fá staðfestingu á sjúkdóm er skurðaðgerð. Tilgangur: Skoða og samþætta niðurstöður rannsókna um líðan kvenna með endómetríósu, ásamt því að skoða algengi, greiningu og meðhöndlun sjúkdóms. Aðferð: Framkvæmd var fræðileg samantekt þar sem kerfisbundin leit var gerð í gagnabanka PubMed að rannsóknum sem kanna áhrif endómetríósu á líðan kvenna. Sett voru þau inntökuskilyrði að rannsóknirnar væri frá árunum 2012-2022 og fjölluðu um endómetríósu. Til að sýna frá ferli heimildaleitar var stuðst við PRISMA-flæðirit. Niðurstöður: Níu rannsóknargreinar stóðust inntökuskilyrði. Niðurstöður samantektarinnar eru flokkaðar niður í fjóra meginkafla, algengi, meðferðarúrræði, lífsgæði og andleg líðan. Niðurstöður gefa tilkynna að endómetríósa getur haft neikvæð áhrif á líf kvenna, þ.e. lífsgæði og andlega líðan. Lífsgæði kvenna getur verið verulega skert þar sem endómetríósa hefur margar daglegar áskoranir í för með sér sem getur skilað sér í takmörkunum við að ná ýmsum lífsmarkmiðum svo sem menntun, starfsferil, samböndum og stofnun fjölskyldu. Konur sem þjást af endómetríósu eru líklegri til að þróa með sér geðraskanir svo sem kvíða og þunglyndi vegna krónískra verkja og úrræðaleysis. Ályktanir: Hægt er að draga þá ályktun að endómetríósa er seint greindur og flókinn sjúkdómur meðal kvenna sem getur haft veruleg áhrif á lífsgæði og líðan sjúklinga sem þjást af þessum sjúkdómi. Mikilvægt er að heilbrigðisstarfsfólk þekki til sjúkdómsins og geti veitt konum með endómetríósu viðeigandi meðferð, verkjastillingu og stuðning þegar leitað er til heilbrigðiskerfisins. Lykilorð: Endómetríósa, greining og meðferð, verkir, ófrjósemi, lífsgæði, andleg líðan

My notes (saved in your browser only)

Condition tags

endometriosis

Citation neighborhood (no data yet)

We don't have any in-corpus citations linked to this paper yet. The paper's references may be in our DB but unresolved to ``paper_id`` (resolution happens at ingest when the cited DOI matches a row we already have). Run the cross-source citation reconcile pass to retry.

Source provenance

openalex
last seen: 2026-05-11T08:10:54.400472+00:00
License: CC0 · commercial use OK